

Keflavíkurflugvelli, Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli hefur verið lokað þar til ítarlegri upplýsingar um gosið í Eyjafjallajökli liggja fyrir. Þetta er gert samkvæmt viðbúnaðaráætlun Flugstoða.
Gossprungan á Fimmvörðuhálsi er 0,5-1 km á lengd. Á tímabilinu frá klukkan 04 til 07 var kvikustrókavirkni mjög jöfn.
Fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins á Hvolsvelli, Hellu og í Vík í Mýrdal hefur verið lokað eftir að aðgerðarstjórn almannavarna aflétti rýmingaráætlun að mestu leyti. Íbúar á fjórtán bæjum mega enn ekki snúa til síns heima og verður þeim sem á þurfa að halda útveguð gisting.
Allt innanlandsflug liggur niðri þangað til klukkan 18.15 í kvöld vegna eldgossins. Fólk er hvatt til að kynna sér tímasetningar á flugi á textavarpinu.
Fyrsta Icelandair vélin sem beðið hefur í Boston vegna eldgossins í Eyjafjallajökli fer í loftið klukkan hálffimm að íslenskum tíma. Guðjón Arngrímsson segir að hinar vélarnar tvær fylgi síðan í kjölfarið. Um fimmhundruð manns hafa beðið í Boston í dag.
Gossprungan er norðarlega í Fimmvörðuhálsi, á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls, segir Landhelgisgæslan eftir að þyrla á hennar vegum hefur flogið yfir.
Gosóróinn í Eyjafjallajökli virðist hafa náð hámarki um 7-8 í morgun en aðeins hefur dregið úr honum síðan, samkvæmt upplýsingum frá jarðskjálftasérfræðingi á Veðurstofunni.
Um 500 manns bíða í Boston í Bandaríkjunum eftir því að ná flugi til Íslands. Eldgosið á Fimmvörðuhálsi og lokun flugvalla hefur valdið mikilli truflun á flugi Icelandair.
Gríðanlegan gosmökk leggur frá gösstöðvunum í Eyjafjallajökli, segir Kristján Már Unnarsson fréttamaður sem staddur er i grunnskólanum á Hvolsvelli og fylgist með því sem þar fer fram. Hann segir að ekki sjáist til gosstöðvanna frá Hvolsvelli vegna gosmakkarins. Hvasst er á Hvolsvelli og virðist áttin vera þannig að mökkinn leggi að Hvolsvelli. Þyrla flaug yfir svæðið fyrir fáeinum mínútum en gat heldur ekki séð neitt til gosstöðvanna vegna gosmakkarins.
Opnað hefur verið fyrir umferð á milli Þjórsár og Víkur að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Umferðin er þó takmörkuð enn sem komið er og er fólk vinsamlegast beðið um að vera ekki að stoppa á leiðinni.
TF-Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar náði einstæðum myndum af gosinu í nótt. Í frétt á heimasíðu Gæslunnar segir að vegna hugsanlegrar ösku var farið að Krísuvík og þaðan til suðurs og 10 sjómílur suður fyrir Surtsey. Þaðan var haldið austur að jöklinum og síðan til norðurs.
Eyjafjallajökull uaktywnil sie i nastapila erupcja. Zdecydowano ewakulowac zgodnie z planem. Z nastepujacych miejscowosci zostali ewakulowani ludzie.
Gos er hafið í Eyjafjallajökli. Þetta staðfesti lögreglan á Selfossi við Vísi. Lögreglan segir að menn hafi orðið varir við öskufall í jöklinum um korter yfir tólf.
Talið er að um sex hundruð manns hafi yfirgefið heimili sín vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.
Tveir vísindamenn sem fóru í leyfisleysi upp á Fimmvörðuháls til að virða fyrir sér gosið festust þar á bíl sínum í nótt. Tveir menn frá björgunarsveitinni Víkverja í Vík gerðu sér far upp á Fimmvörðuháls til þess að hjálpa þeim og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli eru þeir á leið niður. Lögreglan segir það mjög ámælisvert af mönnunum að fara þessa leið við þær aðstæður sem nú eru uppi.
Samkvæmt upplýsingum frá Samhæfingarmiðstöð Almannavarna verður haldinn stöðufundur með vísindamönnum og öðrum sérfræðingum vegna eldgossins núna klukkan þrjú á Hellu. Á fundinum verður lagt mat á stöðuna og hvernig gosið hefur þróast.
Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að bjarminn sem kemur frá gosinu bendi til þess að þarna komi glóandi kvika. Gosið komi ekki upp í ís því þá væri gjóskufjallið meira.
Bændum heimilt að fara inn á lokuð svæði undir Eyjafjallajökli í birtingu til þess að sinna búpeningi í birtingu. Bændur óttuðust mjög í nótt um að búfé stafaði ógn af öskufalli frá gosinu.
Gert er ráð fyrir að fyrsta flugvél á vegum Flugfélags Íslands fari í loftið á sjötta tímanum í dag, en innanlandsflug hefur annars legið niðri. Frá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að farnar yrðu fjórar ferðir til Akureyrar en annars væri ekki flogið.
„Fyrstu áhyggjurnar þegar ég heyrði af þessu tengdust fluginu,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Gosóróinn í Fimmvörðuhálsi er í lægð núna. Sigurlaug Hjaltadóttir, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hann virðist minnka og vaxa á víxl. Því er ómögulegt að spá fyrir um framhald málsins. Enn mælast smáskjálftar á svæðinu. Um hádegisbil höfðu um 30 smáskjálftar mælst siðan á miðnætti í nótt.
Eldgosið í Eyjafjallajökli er enn í fullum gangi að sögn Sigurlaugar Hjaltadóttur jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Hún segir að gosóróinn hafi minnkað um tíu leytið í morgun en síðan rauk hann aftur upp um ellefu leytið og hefur hann gengið í púlsum eftir það en ávallt verið meiri en þegar hann var minnstur klukkan tíu.
Öllum lokunum hefur verið aflétt á Suðurlandsvegi en þar hefur umferð verið takmörkuð frá því eldgos hófst í Eyjafjallajökli. Þessi ákvörðun var tekin á aðgerðarstjórnarfundi sem haldinn var á Hellu klukkan þrjú í dag.
Siv Jensen, formaður norska Framfaraflokksins, segir að hún sé heilluð af miklum kröftum íslenskrar náttúru. Siv er stödd hér á landi ásamt 120 flokksfélögum sínum segir norska blaðið Verdens Gang.
Yfirdýralæknir og Matvælastofnun mælist til þess við bændur að þeir fylgist vel með öskufalli vegna hættu sem búfénaði getur stafað af mengun sem öskunni fylgir. Þá er nauðsynlegt að fylgjast með gæðum vatns þar sem bæir eru með einkavatnsveitur.
„Þetta gengur vel. Það er allt í rólegheitum hjá okkur,“ segir Hrafnhildur Björnsdóttir, vettvangsstjóri hjá Rauða krossinum, sem stödd var í fjöldahjálparstöðinni í Hvolsskóla á Hvolsvelli þegar Vísir náði tali af henni.
Þremur flugvélum Icelandair sem voru á leið frá Seatle, Orlando og New York í Bandaríkjunum, var snúið frá því að koma til íslands vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Flugvélunum frá Seattle og og Orlando var snúið til Boston en flugvélinni frá New York var snúið til Glasgow í Skotlandi.
Á fundi Almannavarnanefndar sem haldinn var á Hellu í dag var tekin ákvörðun um þær rýmingar sem verða í gildi í nótt vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Þær rýmingar sem verða í gildi í nótt eru eftirfarandi: