Lífið

Sparkað vegna samkynhneigðar

lesbía?
Christina Aguilera grét á öxl hinnar lesbísku Samönthu Ronson eftir að hún skildi við eiginmann sinn.
lesbía? Christina Aguilera grét á öxl hinnar lesbísku Samönthu Ronson eftir að hún skildi við eiginmann sinn.

Lesbíski plötusnúðurinn Samantha Ronson sást yfirgefa heimili söngkonunnar Christinu Aguilera undir morgun, skömmu eftir að sú síðarnefnda skildi við eiginmann sinn.

Ronson er þekktust fyrir að hafa átt í ástarsambandi við vandræðagemlinginn Lindsay Lohan, en Aguilera gaf þarna sögum um meinta samkynhneigð sína byr undir báða vængi.

Erlendir fjölmiðlar velta nú fyrir sér hvort fyrrverandi eiginmaður Aguilera, Jordan Bratman, hafi sótt um skilnað vegna óseiðandi hungurs hennar í samneyti við konur. Fjölmiðlar sögðu í vikunni sögu konu sem hafði neitað Aguilera um einnar nætur gaman eftir að þær hittust á skemmtistað. Þá hefur hún lýst því yfir í viðtölum að hún sé einnig gefin fyrir konur.

Samantha Ronson sást yfirgefa heimili Aguilera klukkan sjö um morgun og náðist af því mynd. Talsmaður Aguilera neitar að eitthvað sé á milli þeirra og segir þær einfaldlega vera góðar vinkonur - og hafa verið lengi. Aðrir tala um að það segi ýmislegt um Christinu Aguilera að hún hafi valið Samönthu Ronson til að hugga sig þessa örlagaríku nótt, eftir að veröld hennar hrundi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×