Þrenna frá Kristínu Ýr kom Val í bikarúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2010 13:45 Kristín Ýr Bjarnadóttir. Mynd/Anton
Valskonur eru komnar í bikarúrslitaleikinn þriðja árið í röð eftir 3-0 sigur á Þór/KA í undanúrslitaleik liðanna í VISA-bikar kvenna í dag. Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði öll þrjú mörkin fyrir Valsliðið. fyrstu tvö með skalla eftir fyrirgjafir frá Hallberu Guðnýju Gísladóttur og það síðasta úr vítaspyrnu á lokamínútu leiksins. Valsliðið var mun sterkari aðilinn í leiknum en mörkin komu þó ekki fyrr en á síðustu tuttugu mínútunum. Þór/KA voru ágengar í upphafi leiks og Rakel Hönnudóttir fékk algjört dauðafæri eftir þriggja mínútna leik en skaut framhjá ein á móti Maríu Björg í markinu. Valsliðið vaknaði við þetta, tók völdin á vellinum og fékk í kjölfarið nokkur ágæt skotfæri í og við teiginn en ekkert dauðafæri í líkingu við færi Rakelar í upphafi leiks. Valsliðið var muna meira með boltann en ógnaði helst eftir föst leikatriði og eftir eina hornspyrnu liðsins þurftu varnarmenn Þór/KA að bjarga á marklínu eftir skalla Katrínar Jónsdóttur. Þór/KA ógnaði alltaf í hröðum sóknum ef þeim tókst að koma boltanum á Mateju Zver sem var mjög nálægt því að koma Þór/KA í 1-0 á 39. mínútu eftir að hafa sólað sig í gegnum Valsvörnina. Seinni hálfleikurinn var mun rólegri en sá fyrri en Valsliðið hélt þó áfram yfirhöndinni. Vesna Smiljkovic var komin í upplagt tækifæri á 70. mínútu en tók vitlausa ákvörðun með að gefa boltann þegar hún átti að fara sjálf. Valsliðið brunaði strax í sókn og Kristín Ýr Bjarnadóttir skallaði glæsilega fyrirgjöf Hallberu Guðnýju Gísladóttur í markið, 1-0 fyrir Val. Þór/KA náði ekki að ógna Valsliðinu verulega eftir þetta og Kristín Ýr innsiglaði síðan sigurinn með keimlíku marki og því fyrra. Hallbera Guðný var aftur á ferðinni upp vinstri kantinn og gaf laglega fyrir þar sem Kristín Ýr skallaði boltann í markið. Berglind Magnúsdóttir hálfvarði skotið en náði ekki að koma í veg fyrir að það færi inn. Guðný Björk Óðinsdóttir fiskaði síðan vítaspyrnu á 89. mínútu og Kristín Ýr innsiglaði þrennuna með því að skora af öryggi úr henni.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira