Rússar vísa gagnrýni á bug 29. desember 2010 00:30 Olíujöfurinn fyrrverandi Mikhail Khodorkovsky hefur setið í fangelsi frá árinu 2003. Fréttablaðið/AP
Rússar svara þeim fullum hálsi sem hafa gagnrýnt málareksturinn gegn olíujöfrinum Mikhail Khodorkovsky, sem var fundinn sekur í vikunni um undanskot og peningaþvætti. Meðal annars sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að dómurinn vekti upp spurningar um pólitíska íhlutun í málinu, en Khodorkovsky hafði staðið uppi í hárinu á Vladimír Pútín, þáverandi forseta landsins. Segir í tilkynningu frá rússneska utanríkisráðuneytinu að slíkar ásakanir séu tilhæfulausar með öllu og beinir ráðuneytið þeim tilmælum til annarra ríkja að skipta sér ekki af innanríkismálum Rússa. Þar segir aukinheldur að málareksturinn gegn Khodorkovsky snúist um stórfelld skattsvik og peningaþvætti, og í Bandaríkjunum væru menn jafnvel dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir slíkt. Þessi yfirlýsing þykir lögmönnum Khodorkovsky varpa ljósi á vanþekkingu yfirvalda því þetta mál snerist ekki um skattsvik. Þrátt fyrir þíðu í samskiptum Rússa og Vesturveldanna að undanförnu sýnir þessi dómur að mati fréttaskýrenda að lítið hafi í raun breyst í innanríkismálum Rússlands síðustu ár. - þj
Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fleiri fréttir Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Sjá meira