Golf

Gamli, góði Tiger er kominn aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Það er greinilega þungu fargi létt af Tiger Woods að hafa klárað skilnaðarmálið sitt því hann lék eins og hann á að sér á Barclays-mótinu í gær.

Í fyrsta skipti í ansi langan tíma er nafnið hans efst á listanum en hann lék fyrsta hringinn á 65 höggum. Tiger leiðir mótið ásamt Vaughn Taylor.

Tiger fékk sjö fugla á hringnum og aðeins einn skolla.

"Ég get ekki sagt til um hvort þessi spilamennska sé tilkomin bara af því ég er búinn að klára skilnaðinn. Þetta var samt afar ánægjulegt og spennandi að sjá boltann fljúga eins og maður vill á nýjan leik," sagði Tiger kátur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×