Talaði aldrei um fimm fyrirtæki Brjánn Jónasson skrifar 5. ágúst 2010 07:00 Svaraði spurningum í Finnlandi um orkumál á Íslandi. Fréttablaðið/Anton
Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður segir fréttamann AFP-fréttaveitunnar hafa haft rangt eftir sér svör hennar um Magma Energy á blaðamannafundi á þriðjudag. AFP hafði eftir Björk að Magma Energy ætlaði sér að kaupa upp allar orkuauðlindir Íslands og væri þegar að skoða kaup á fimm orkufyrirtækjum til viðbótar við HS orku. Þetta segir Björk misskilning blaðamanns. Hún hafi aldrei sagt að Magma ætlaði sér að kaupa upp allar orkuauðlindir landsins. Þá hafi mögulega skolast til þegar hún hafi sagt að Magma hefði áhuga á því að virkja á fimm stöðum á landinu, hún hafi aldrei talað um kaup á fimm fyrirtækjum. Björk segir að staðirnir sem hún hafi verið að tala um séu raunar sjö talsins. Það séu Hrunamannaafrétt, Öræfi, Reykjahlíð, Vogar, Bjarnarflagsvirkjun, Kerlingarfjöll og Krýsuvík. Björk segist enn fremur hafa nefnt að oft hafi Magma komið til landa sem hafi þurft á hjálp frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að halda. Rangt sé að hún hafi haldið því fram að Magma sé í samstarfi við sjóðinn. Blaðamannafundurinn var haldinn í Helsinki í Finnlandi, en tilefnið var frumsýning nýrrar teiknimyndar um Múmínálfana.
Björk Umhverfismál Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fleiri fréttir Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Sjá meira