Danir hlógu alla leið í bankann Óli Tynes skrifar 26. janúar 2010 10:20 Múhahaha
Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS hefur reiknað út að loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hafi kostað bandaríska skattgreiðendur vel yfir einn milljarð dollara. Það er meira en 126 milljarðar íslenskra króna. Þessi upphæð er ferðakostnaður þingmanna og annarra opinberra starfsmanna sem sóttu ráðstefnuna fyrir hönd Bandaríkjanna. Inni í þessu er ekki kostnaður við heimsókn Baracks Obama sem náttúrlega kom til Kaupmannahafnar með einkaþotu embættisins Air Force One. Þingmennirnir og spúsur þeirra bjuggu náttúrlega á fimm stjörnu hótelum og ferðuðust á fyrsta farrými í flugvélum til og frá Kaupmannahöfn. Ein skýringin á himinháum hótelteikningum var raunar sú að Danir notuðu heldur betur tækifærið til þess að maka krókinn. Á Marriott hótelinu þurftu gestir til dæmis að greiða fyrir lágmark sex gistinætur, þótt þeir væru þar aðeins í tvær nætur. Einn þingmannanna sagði að hann hefði mótmælt þessu harðlega, en Dönum hefði ekki verið kvikað. CBS spyr hversu vel mönnum gangi að semja um flókin loftslagsmál ef þeir geti ekki einusinni samið um hótelherbergi.
Loftslagsmál Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira