Lífið

Kylie kaupir sér hús

kylie minogue Söngkonan er flutt inn í nýtt hús með kærasta sínum, Andres Segura.
kylie minogue Söngkonan er flutt inn í nýtt hús með kærasta sínum, Andres Segura.

Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur keypt sér í hús London þar sem hún ætlar að búa með kærasta sínum, spænsku fyrirsætunni Andres Velencoso Segura. Þau hafa verið saman í tvö ár. Fyrr á árinu var talið að þau væru að hætta saman en Minogue neitaði því alfarið.

„Ég er virkilega hamingjusöm. Mér finnst þetta vera ný byrjun á lífi mínu. Mig hefur langað að flytja, mjög lengi, og ég var búin að leita úti um allt án þess að finna neitt," sagði söngkonan. „Þetta er staður þar sem mamma og pabbi geta verið tíðir gestir. Ég á líka loksins minn eigin garð og ég hlakka til að reyna fyrir mér í garðyrkjustörfunum."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×