Golf

Rigningin að riðla öllu í Ryder-bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods með regnhlífina í dag.
Tiger Woods með regnhlífina í dag. Mynd/Nordic Photos/Getty
Enginn fjórleikur kláraðist á fyrsta degi Ryder-bikarsins í golfi í dag en það varð að fresta leik í sjö tíma vegna mikilla rigninga. Þetta er í 38. sinn þar sem Bandaríkin og Evrópu keppa í þessari frægustu liðakeppni í golfi og hafa Bandaríkjamenn titil að verja.

Vegna rigninganna og frestuninnar í dag hefur dagskrá Ryder-bikarsins riðlast mikið en mótshaldarar gera nú allt til þess að það verði hægt að klára keppnina á sunnudaginn. Takist það ekki mun Ryder-bikarnum ljúka á mánudegi í fyrsta sinn í sögu hans.

Þegar keppni var frestað í kvöld þá var bandaríska liðið yfir í tveimur leikjum, í einum leik var jafnt og Evrópa var yfir í einum leik. Fyrsti leikur komst á þrettándu holu en aðrir leikir eru komnir styttra. Evrópa byrjaði betur í morgun en sjö tíma biðin fór greinilega betur í Bandaríkjamenn sem spiluðu mun betur seinni hluta dagsins.

Bandaríkjamennirnir Stewart Cink og Matt Kuchar eru tveimur holum yfir gegn Norður Írunum Rory McIlroy og Greame McDowell en þeir hafa klárað elleftu holu. Bandaríkjamennirnir Jeff Overton og Bubba Watson eru líka yfir gegn Evrópumönnunum Padraig Harrington og Luke Donald en þeir hafa bara lokið átta holum.

Evrópumennirnir Lee Westwood og Martin Kaymer eru einni holu yfir gegn Bandaríkjamönnunm Phil Mickelson og Dustin Johnson þegar þeir eru búnir að spila tólf holur en það er allt jafnt hjá Bandaríkjamönnunum Tiger Woods og Steve Stricker á móti Englendingunum Ian Poutler og Ross Fisher.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×