Golf

Of mikið gert úr erjum Tiger og McIlroy

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rory McIlroy.
Rory McIlroy.

Fjölmiðlar hafa gert sér mikinn mat úr þeim orðum Norður-Írans Rory McIlroy að Tiger Woods sé ekki upp á sitt besta og hann vilji leggja hann af velli í Ryder-bikarnum.

Tiger var ekkert of hress er hann frétti af þessum ummælum og sagðist vera til í að leggja Írann líka. Flestir vonast því eftir að sjá þá keppa.

Phil Mickelson segir að fjölmiðlar hafi blásið málið allt of mikið upp.

"Svona týpa er Rory McIlroy. Hann vill rétt eins og aðrir toppspilarar leggja þá bestu. Þetta er ekkert flóknara en það," sagði Mickelson.

Mickelson hrósaði sínum stráknum í hástert og bað fjölmiðla um að gera ekki svona mikið úr málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×