Íslenski boltinn

Kristján Finnbogason framlengir við Gróttu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristján við undirskriftina í dag ásamt forráðamönnum Gróttu.
Kristján við undirskriftina í dag ásamt forráðamönnum Gróttu. Mynd/Grótta

Kristján Finnbogason, fyrrum markvörður KR, hefur ákveðið að taka slaginn með Gróttu í 1. deildinni næsta sumar. Kristján skrifaði undir nýjan samning við félagið í dag.

Kristján stóð sig frábærlega með Gróttu síðasta sumar er liðið tryggði sér þáttökurétt í 1. deild. Hann var meðal annars valinn markvörður ársins í 2. deildinni.

Eitthvað hefur verið slúðrað um það að KR kynni að leita aftur á náðir hans til þess að leysa markvarðavandamál félagsins en nú er endanlega ljóst að ekkert verður af slíku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×