Golf

Tiger missti flugið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Tiger Woods missti flugið á öðrum hring á Barclays-mótinu og datt úr toppsætinu niður í það fjórtánda.

Tiger lék fyrsta hringinn á 65 höggum sem var hans besti hringur á árinu. Hann lék síðan á 73 höggum í gær og hrundi niður topplistann.

Tiger fékk fjóra skolla á síðustu átta holunum og púttaði þess utan afar illa.

"Ég var ekki að finna hraðann á flötunum. Púttin voru annað hvort of stutt eða allt of löng. Það kom í bakið á mér," sagði Tiger.

"Ég var annars ekkert að hitta boltann illa. Ég hitti hann mjög vel en púttin fóru alveg með mig."

Jason Day leiðir mótið á 8 höggum undir pari samtals.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×