Golf

Birgir Leifur bætti sig um 7 högg en staða hans er vonlítil

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson hefur alls ekki náð sér á strik á úrtökumótinu á Spáni.
Birgir Leifur Hafþórsson hefur alls ekki náð sér á strik á úrtökumótinu á Spáni. Mynd/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG lék á 73 höggum í dag eða 3 höggum yfir pari á öðrum keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Birgir bætti sig um 7 högg frá því á fyrsta hringnum þar sem hann lék á 80 höggum

Staða hans er vonlítil og litlar líkur á því að hann komist í hóp 30 efstu sem tryggja sér keppnisrétt á næsta tímabili. Íslandsmeistarinn er samtals á 11 höggum yfir pari og er hann í þriðja neðsta sæti af alls 157 kylfingum.
Birgir fékk þrjá fugla (-1) á hringnum í dag, fjóra skolla (+1) og einn skramba (+2). Hann leikur á morgun á Stadium vellinum þar sem hann lék á fyrsta keppnisdeginum og á fjórða hringnum leikur hann á sama velli og í dag, Tour vellinum á PGA golfsvæðinu í Katalóníu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×