Golf

McDowell sigraði Woods í bráðabana á mögnuðum lokahring á Chevron meistaramótinu

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Graeme McDowell sigraði á Chevron meistaramótinu og lauk glæsilegu keppnistímabili með sigri.
Graeme McDowell sigraði á Chevron meistaramótinu og lauk glæsilegu keppnistímabili með sigri. AP
Norður-Írinn Graeme McDowell kom í veg fyrir að Tiger Woods næði að sigra á einu golfmóti á árinu 2010. McDowell sýndi fádæma keppnishörku á lokakeppnisdegi Chevron meistaramótsins og tryggði sér sigur á fyrstu holu í bráðabana gegn Tiger Woods sem var með fjögurra högga forskot á McDowell fyrir lokahringinn.

Lokahringurinn var gríðarlega spennandi þar sem að McDowell náði góðri byrjun á meðan Woods gerði mistök. Á 18. braut voru þeir jafnir á 16 höggum undir pari samtals og Woods virtist hafa tryggt sér sigur með frábæru innáhöggi af um 100 metra færi - þar sem hann „klíndi" boltanum alveg upp við stöngina. McDowell átti ekki alveg eins gott innáhögg en hann sýndi styrk sinn með því að setja púttið í fyrir fugli af um 5 metra færi.
Tiger Woods leyndi ekki vonbrigðum sínum á lokahringnum en hann náði ekki að vinna golfmót á þessu ári og er þetta í fyrsta sinn frá árinu 2001 sem slíkt gerist.AP
Í bráðabananum léku þeir 18. holuna á ný og báðir voru þeir um 5 metra frá holu eftir innáhöggin. McDowell var á svipuðum stað og hann var áður - og hann setti boltann beint ofaní holuna. Woods reyndi að jafna en boltinn fór rétt framhjá holunni.

Lokastaðan:

Graeme McDowell - 16

Tiger Woods -16

Paul Casey - 12

Rory McIlroy -11

Hunter Mahan -10

Ian Poulter -9

Stewart Cink -9

Luke Donald -5

Sean O'Hair -4

Zach Johnson -4

Jim Furyk par

Steve Stricker + 1

Nick Watney + 2

Camilo Villegas + 3

Bubba Watson + 3

Dustin Johnson + 4

Anthony Kim + 4

Matt Kuchar + 7




Fleiri fréttir

Sjá meira


×