Golf

Guðmundur vann sterkt mót í Englandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Einhver efnilegasti kylfingur landsins, Guðmundur Ágúst Kristjánsson sem er klúbbmeistari GR, gerði sér lítið fyrir í dag og vann Duke of York-golfmótið sem fram fór á Royal St. George´s-golfvellinum í Englandi.

Guðmundur lék lokahringinn á einu höggi yfir pari og lauk leik á fimm höggum yfir pari samtals. Hann var höggi á eftir næsta keppenda.

Þetta er frábær árangur hjá Guðmundi því margir af efnilegustu kylfingum Evrópu undir 18 ára aldri tóku þátt í þessu móti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×