Lífið

Dagskrárstjóri vonsvikinn með Hringekjuna

Gísli sigrar Góa 
Mun fleiri horfa á þátt Gísla Einarssonar, Landann, en Hringekjuna sem er stjórnað af Guðjóni Davíð Karlssyni. Sigrún Stefánsdóttir hefur fulla trú á að Hringekjan muni bæta sig.
Gísli sigrar Góa Mun fleiri horfa á þátt Gísla Einarssonar, Landann, en Hringekjuna sem er stjórnað af Guðjóni Davíð Karlssyni. Sigrún Stefánsdóttir hefur fulla trú á að Hringekjan muni bæta sig.

„Auðvitað hefði maður viljað sjá meira áhorf, það vilja allir, og þetta eru ákveðin vonbrigði. Ég er hins vegar sannfærð um að tími Hringekjunnar sé að koma,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.

Hringekjan, skemmtiþáttur í umsjá Guðjóns Davíðs Karlssonar, hefur ekki náð að fylla það skarð sem Spaugstofan skildi eftir sig. Þátturinn mældist í vikulegri skoðanakönnun Capacent með 22,8 prósenta áhorf í aldurshópnum 12-80 ára og 18,4 prósenta áhorf hjá fólki á aldrinum 12-49 ára.

Til samanburðar má nefna að Spaugstofan mældist með 50,3 prósenta áhorf í aldurshópnum 12-80 á sama tíma í fyrra og 42,4 meðal 12-49 ára.

Þegar RÚV var harðlega gagnrýnt á sínum tíma fyrir að hafa Spaugstofuna enn á dagskrá benti yfirstjórnin yfirleitt á ótrúlegar áhorfstölur.

Gagnrýnisraddirnar bentu þá á að hægt væri að sýna málningu þorna í sjónvarpi á umræddum dagskrártíma, það myndi fá sama áhorf. Sú fullyrðing virðist hins vegar byggð á sandi ef marka má þessar niðurstöður.

Sigrún telur ástæðuna liggja í því að fólk sé í eðli sínu íhaldssamt og biður áhorfendur RÚV um að gefa þessu tíma.

„Fyrir mitt leyti var fyrsti þátturinn slakastur en síðan hafa þau verið að sækja í sig veðrið, þátturinn hefur verið að slípast til og á bara eftir að verða betri,“ segir Sigrún.

Hún kveðst þó ánægð með áhorf á þáttinn Landann í ritstjórn Gísla Einarssonar en hann mælist með rúmlega þrjátíu prósenta áhorf.

„Það er mjög ánægjulegt og sannar að fólk vill sjá meira efni utan af landi, sem ætti að vinna með Hringekjunni.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×