Golf

Fínn hringur hjá Birgi Leif

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Birgir Leifur Hafþórsson lék vel á Opna austurríska mótinu í golfi í morgun en mótið er liður í Evrópumótaröðinni.

Birgir Leifur lék á 69 höggum eða þrem höggum undir pari. Hann er því samtals á tveim höggum undir pari en hann lék á 73 höggum í gær.

Birgir er sem stendur jafn mörgum öðrum í 31. sæti en sú staða mun breytast eftir því sem fleiri kylfingar klára sinn hring.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×