Lánin öll kosta sextán milljarða króna Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 8. september 2010 06:00 seðlabankastjóri
Seðlabankinn áætlar að vaxtakostnaður við lánin sem tekin voru í tengslum við efnahags-áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nemi 104 milljónum evra, jafnvirði sextán milljarða króna, á ári verði þau öll nýtt. Lánin mynda gjaldeyrisforða Seðlabankans. Áætlaður vaxtakostnaður af þeim lánum sem þegar hefur verið dregið á nemur 41 milljón evra, jafnvirði átta milljarða króna. Það jafngildir 0,5 prósentum af vergri landsframleiðslu. Þetta kemur fram í svari Seðlabankans við fyrirspurn Fréttablaðsins á síðasta vaxtaákvörðunarfundi bankans. Helmingur lána frá AGS og Norðurlöndunum hefur nú skilað sér og þriðjungur láns frá Póllandi. Allt lán Færeyinga hefur verið nýtt. Í svari Seðlabankans kemur fram að gjaldeyrisvaraforðinn gegni mikilvægu hlutverki. Hann þurfi að vera nægur til að tryggja greiðslugetu ríkissjóðs, stuðla að stöðugleika á gjaldeyrismarkaði auk þess sem öflugur forði geti lækkað áhættuálag á vexti sem innlendum fyrirtækjum bjóðast erlendis. Þá bendir bankinn á að forðinn hafi nýst til kaupa á útistandandi skuldum ríkissjóðs á hagstæðum kjörum og í raun lækkað lánsfjárkostnað ríkissjóðs.
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira