Golf

McIlroy vill ólmur mæta Tiger

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Norður-Írinn Rory McIlroy er fullur sjálfstrausts fyrir Ryder Cup og segist vilja mæta Tiger Woods í mótinu enda sé hann ekki lengur sami kylfingurinn og hann var.

"Eftir allt sem hefur gerst síðustu 18 mánuði er ekki sama ára yfir honum lengur. Ef hann bætir ekki leik sinn á ótrúlega skömmum tíma eiga allir í Evrópuliðinu möguleika gegn honum. Ég væri til í að spila gegn honum," sagði McIlroy fullur sjálfstrausts.

Tiger var spurður út í þessi ummæli og sagðist vera meira en klár í að spila gegn Norður-Íranum unga. Hann virtist þó vera pínumóðgaður.

McIlroy talaði þó einnig fallega um Woods og sagði hann líklega vera besta kylfing allra tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×