Calabría Davíð Þór Jónsson skrifar 11. júní 2010 06:00 Um daginn átti ég erindi norður til Akureyrar. Ferðafélagi minn hafði það þá á orði að helsti munurinn á Reykjavík og Akureyri væri hve Esjan væri nálægt á Akureyri. Það reyndist rétt hjá honum. Fjallið hinum megin við fjörðinn er miklu nær en í Reykjavík. Það heitir að vísu eitthvað allt annað en Esja. Um þessar mundir er ég staddur í Calabríu á Suður-Ítalíu. Fyrir þá sem vilja glöggva sig á landafræðinni þá er Calabria stóratáin. Eins og á Akureyri er það fyrsta sem maður veitir athygli, þegar maður horfir út á sjóinn héðan frá Tropea, hve Snæfellsjökull er nálægt. Keilulaga eldfjallið við sjóndeildarhringinn er tíu til tuttugu sinnum stærra. Það heitir að vísu ekki Snæfellsjökull heldur Stromboli. Calabría er eins ólík Íslandi og hægt er að hugsa sér, bæði hvað varðar gróðurfar sem dýra- og mannlíf. Til dæmis hafa Calabríumenn þann undarlega sið að byggja þorp sín og bæi á bjargbrúnum. Þar sem klettar skaga í sjó fram eru veggir húsanna gjarnan í beinu framhaldi af þeim, gott ef byggingarnar slúta ekki sums staðar fram af brúninni. Ekki lofthræddir, Ítalirnir. Þessu má líkja við að Ísfirðingar hefðu ákveðið að byggja þorpið sitt á Látrabjargi. Á ystu nöf. Ef þeir hefðu öldum saman haft sömu ástæðu og Calabríumenn til að óttast sjóræningja og þurft að gera ráðstafanir til að verjast árásum þeirra hefðu þeir reyndar sennilega gert það. Calabríumanni fyndist hann sennilega illa rættur og undarlega settur á Íslandi, svo vitnað sé í skáldið. Hann sæi líklega lítið annað en nöturlegan og gróðurvana klett í eilífum útsynningi og hraglanda. Með réttu. Það væri eðlileg upplifun manns frá stað þar sem helstu farartálmar rútubílanna, sem reyna að þræða þröngu vegarslóðana sem hlykkjast hér upp og niður fjallshlíðarnar, eru ósveigjanlegar greinar aldinna ólífutrjáa sem teygja sig yfir veginn og - þegar verst lætur - inn um glugga bifreiðanna. Sjálfum finnst mér ferðalög um framandi slóðir þroska og stæla þjóðernisvitund mína. Þá á ég ekki við að ég fyllist yfirlæti og finnist Ísland bera af öðrum löndum, að það sé merkilegra íslenskur en af öðru þjóðerni. Svo er ekki. Að upplifa sig sterkt sem aðkomumann gerir mér aftur á móti ljósara hver náttúruleg heimkynni mín eru og hvers virði þau eru mér. Annars staðar er ég aldrei neitt annað en hafrekið sprek á annarlegri strönd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Þór Jónsson Mest lesið Kerfið er brotið af því þú þolir það þannig Anna Bergþórsdóttir Skoðun Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun Davíð kvaddur Ámundi Loftsson Skoðun Enn og aftur, Alma Möller Arnar Helgi Lárusson Skoðun Lygin um að á Íslandi sé nauðgunarmenning Huginn Þór Grétarsson Skoðun Heppni hjúkrunarfræðingurinn sem á að græða helling Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Kópavogsleiðin er merkilegt fyrirbæri Tinna Gunnur Bjarnadóttir Skoðun Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson Skoðun Betri svefn – Betra líf Erla Björnsdóttir Skoðun Til hamingju, Kópavogsbúar – þið eigið von á góðu! Elísabet Sveinsdóttir Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun
Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson Skoðun