Handbolti

Stjarnan vann sterkan sigur á Val

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þorgerður Anna átti frábæran leik í dag.
Þorgerður Anna átti frábæran leik í dag.

Valsstúlkur töpuðu sínum fyrsta leik í N1-deild kvenna í dag er þær sóttu Stjörnuna heim í Garðabæinn. Valur leiddi í hálfleik, 14-18, en Stjarnan kom til baka í þeim síðari og vann tveggja marka sigur, 32-30.

Þorgerður Anna Atladóttir átti stórleik fyrir Stjörnuna og skoraði 11 mörk. Esther Viktoria Ragnarsdóttir var einnig sterk með 6 mörk.

Hjá Val var Kristín Guðmundsdóttir markahæst með 9 mörk en Hrafnhildur Ósk Skúladóttir lét einnig að sér kveða og skoraði 6 mörk.

Stjarnan sendir sterk skilaboð með þessum sigri og sýnir að liðið mun taka þátt í toppbaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×