Makrílviðræður skiluðu engu 2. desember 2010 03:00 Makríll Íslenskar útgerðir munu veiða um 130 þúsund tonn af makríl árið 2011 þar sem ekkert samkomulag náðist um veiðarnar. fréttablaðið/óskar
Lokatilraun strandríkja sem aðild eiga að makrílveiðum í NA-Atlantshafi til að komast að samkomulagi um hlutdeild Íslands í makrílveiðum næsta árs skilaði engum árangri. Fundað var í Ósló dagana 25.-26. nóvember með þátttöku ESB, Noregs, Færeyja og Íslands en Rússland átti þar áheyrnarfulltrúa. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að Ísland taki sér óbreytta hlutdeild í makrílveiðunum á næsta ári, að teknu tilliti til aukningar í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknarráðsins (ICES). Ísland mun jafnframt beina því til hinna strandríkjanna að taka tillit til þessa við kvótaákvarðanir sínar með það í huga að heildarveiðar fari ekki fram úr vísindalegri ráðgjöf. Fram undan er röð tvíhliða viðræðna milli ESB og Noregs, ESB og Færeyja og Noregs og Færeyja um fiskveiðiheimildir. Þá skýrist væntanlega endanlega hvort samkomulag tekst milli þessara þriggja aðila. Búast má við að ESB og Noregur bíði með að taka ákvörðun um eigin makrílveiðar þangað til. - shá
Fréttir Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fleiri fréttir Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sjá meira