Golf

Kaymer vann eftir umspil og ótrúlega dramatík

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Kaymer.
Kaymer. GettyImages
Þjóðverjinn Martin Kaymer vann frábæran sigur eftir dramatískan lokadag á PGA meistaramótinu í golfi í gær. Hann vann eftir umspil við Bubba Watson.

Allt útlit var reyndar fyrir að þrír kylfingar færu í umspilið, tvímenningarnir ásamt Dustin Johnson. En eftir ótrúlega lokaholu var honum vísað frá keppni.

Hann sló út fyrir brautina og inn í áhorfendaskara. Þar lá boltinn á sandkenndu svæði. Það svæði skilgreina mótshaldarar sem glompu en Johnson fór ekki að settum reglum samkvæmt þeirri undarlegu skilgreiningu.

Hann sló í hörðina áður en hann sló í boltann sem er bannað og fékk tvö högg í víti fyrir. Hann komst þar af leiðandi ekki í umspilið. Óskiljanlegt er að áhorfendur hafi fengið að standa á svæði sem er skilgreint sem glompa en Johnson hafði ekki hugmynd um skilgreininguna eins og gefur að skila.

En dramatíkinni á mótinu var ekki lokið. Watson byrjaði betur og fékk fugl á fyrstu holu umspilsins á meðan Kaymer fékk par.

Á þerri næstu snerist dæmið við og þeir voru jafnir fyrir lokaholuna. Þar slóu þeir báðir út fyrir brautina, í þykkan karga hægra megin. Watson sló fyrst og tók mikla áhættu, hann ætlaði inn á í tveimur.

Höggið var lélegt og það fór í vatn. Kaymer sló stutt og lagði upp og sló svo um tíu metra frá holunni. Á meðan tók Watson víti og sló svo yfir flötina. Hann þurfti að setja í úr glompu til að eiga einhverja möguleika og var nálægt því, boltinn fór í stöngina og hefði líklega farið ofan í ef stöngina hefði ekki verið í.

Kaymar tvípúttaði og tryggði sér sinn fyrsta sigur á stórmóti í golfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×