Björn Ingi: Leikgleðin skilar miklu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. nóvember 2010 21:57
Björn Ingi Friðþjófsson hefur staðið sig mjög vel í marki HK í upphafi leiktíðar og það breyttist ekki í kvöld er hans menn unnu góðan sigur á Íslandsmeisturum Hauka í N1-deild karla, 36-34. „Við treystum á liðsheildina og lítum alla sem jafningja í þessu liði," sagði Björn Ingi eftir leikinn í kvöld. „Ég tel að leikgleðin sé sé stór þáttur í velgengninni." „Við leggjum einnig mikla áherslu á æfingar okkar enda trúum við því að ef við stöndum okkur vel á æfingum þá gerist það sama í leikjunum." HK er með frábært sóknarlið en vörn liðsins hefur einnig átt góða spretti, eins og í fyrri hálfleik í kvöld. „Við spilum alltaf mjög vel í vörninni í fyrri hálfleik. En vill það verða að við dettum niður í síðari hálfleik, líklega út af þreytu. Síðasta korterið hjá okkur er yfirleitt frekar lélegt. Þá dettur markvarslan niður um leið enda þetta tvennt nátengt." Hann segist ekki hafa áhyggjur af því að lítil breidd verði liðinu að falli þegar líða tekur á tímabilið. Sigurjón Friðbjörn Björnsson, hægri hornamaður, meiddist til að mynda illa á ökkla undir lok leiksins og óvíst hversu lengi hann verði frá. „Meiðslin hjá Sjonna virtust vera mjög slæm en við eigum góða unga leikmenn fyrir utan byrjunarliðið og ég hef engar áhyggjur af breiddinni."
Olís-deild karla Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Tilkynnti nýjan samning í miðri skrúðgöngu og verður launahæst í heimi Fótbolti Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Danskur skúrkur og Wolfsburg fallið í fyrsta sinn í 30 ár Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deildinni Sport New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Körfubolti United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Enski boltinn Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Sjá meira