Handbolti

Fram-stúlkur komust áfram í Evrópukeppninni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Karen Knútsdóttir, leikmaður Fram.
Karen Knútsdóttir, leikmaður Fram.

Kvennalið Fram í handknattleik komst í dag áfram í EHF-keppninni í handbolta er stelpurnar slógu út svissneska liðið LC Bruhl.

Fram vann fyrri leikinn í gær, 26-25, og síðari leikinn í dag, 31-25.

Stella Sigurðardóttir var markahæst í Framliðinu í dag með 9 mörk. Íris Björk Símonardóttir átti sannkallaðan stórleik í markinu og varði 24 skot, þar af þrjú víti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×