Atli Hilmarsson: Þær voru betri á öllum sviðum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2010 22:23 Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar . Mynd/Vilhelm
Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar var að sjálfsögðu óánægður með leik sinna stelpna í kvöld en Stjarnan tapaði þá með fjögurra marka mun fyrir Fram á heimavelli. „Þetta var mjög sanngjarn sigur hjá Fram í kvöld og hann var síst of stór. Þær voru betri á öllum sviðum. Það var lítið sem féll með okkur. Varnarleikurinn sem er okkar aðall var ekki að virka nógu vel og það er bara of mikið fyrir okkar lið að fá okkur 31 mark," sagði Atli eftir leikinn. „Varnarleikurinn hefur verið plúsinn okkar og ég vil meina það að ef að við hefðum spilað betri vörn þá hefðum við getað unnið þetta," sagði Atli. „Við byrjum leikinn á því að komast í 4-1 og við hefðum þurft að fylgja því betur eftir. Við hleyptum þeim alltof fljótt inn í leikinn og svo var byrjunin á seinni hálfleiknum alveg skelfileg," sagði Atli en Fram skoraði sjö af fyrstu níu mörkum seinni hálfleiks. Framundan eru sex aðrir leikir hjá Stjörnuliðinu áður en janúar er allur og stelpurnar hans Atla fá ekki langan tíma til að sleikja sárin. „Það er mjög slæmt að byrja svona stífa dagskrá á svona leik. Það er strax hörkuleikur á móti Fylki á laugardaginn. Við þurfum að safna kröftum og koma okkur af stað aftur í það. Það verður mjög erfitt og við erum að missa út leikmenn. Við þurfum að lenda í fjórum efstu sætunum og þetta var tap á móti einu liði sem klárlega lendir þar. Við þurfum að koma okkur í hóp fjögurra efstu og þangað stefnum við núna," sagði Atli að lokum.
Olís-deild kvenna Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira