Golf

Singh fékk albatross í Boston

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Vijay Singh átti ótrúlegt högg í dag.
Vijay Singh átti ótrúlegt högg í dag. GettyImages

Kylfingurinn Vijay Singh frá Fiji-eyjum fékk albatross á þriðja hring á Deutsche Bank Championship mótinu sem fram fer í Boston á PGA-mótaröðinni.

Singh sló öðru höggi sínu á 2. holu vallarins beint í holuna og fór því þessa par-5 braut á þremur höggum undir pari. Hann sló með 5-járni af um 200 metra færi, yfir vatn og lenti boltinn svo á flötinni áður en hann rúllaði beint í holuna.

Singh er sjötti kylfingurinn á PGA-mótaröðinni í ár til að fá albatross og er þetta í fyrsta sinn á ferlinum sem hann nær þessum áfanga í móti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×