Dragan: Frábær sigur fyrir Þór/KA Ómar Þorgeirsson skrifar 24. júní 2009 22:00 Frá leik Þórs/KA og KR síðasta sumar. Mynd/Auðunn
Dragan Stojanovic þjálfari Þórs/KA var vitanlega í skýjunum með sögulegan 2-1 sigur liðs síns gegn KR í Pepsi-deild kvenna í kvöld en þetta var í fyrsta skiptið sem norðanstúlkur vinna KR í efstu deild kvenna. „Þetta var frábær sigur fyrir Þór/KA að vinna loksins KR í efstu deildinni og ég er mjög sáttur með þetta. Við vorum að spila frábærlega fyrsta hálftímann í leiknum og þetta var það besta sem ég hef séð til liðsins í sumar og við skorum tvö mörk. Eftir það féllum við skiljanlega aðeins til baka og KR fékk færi til þess að skora. Í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum og KR skoraði svo í lok leiksins en sigurinn var okkar," segir Dragan. Þór/KA komst upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum og er nú sex stigum á eftir toppliðum Vals og Breiðabliks. Dragan vonast til þess að lið sitt nái að blanda sér í toppbaráttuna en veit að það verður erfitt. „Við töpuðum illa gegn Val og Breiðablik í fyrri umferðinni en við ætlum að gera betur næst. Við reynum okkar allra besta til þess að ná toppliðunum en það verður erfitt og við tökum bara einn leik í einu. Annars er mikið eftir af mótinu og þá á mikið eftir að gerast því deildin er nú jafnari og skemmtilegari en í fyrra. Það eru engir auðveldir leikir í deildinni og við vitum að við verðum að mæta tilbúnar til leiks í hvern leik," segir Dragan ákveðinn.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira