Formúla 1

Vettel fljótastur á Silverstone

Sebastian Vettel lét pólítík lönd og leið og náði besta tíma á Silverstone í dag.
Sebastian Vettel lét pólítík lönd og leið og náði besta tíma á Silverstone í dag.

Þjóðverjinn Sebastian Vettel og Ástralinn Mark Webber, báðir á Red Bull voru sneggstir um Silverstone brautina sem verður notuð í síðasta skipti í kappakstri um helgina. Þeir óku á fyrstu æfingu keppnisliða í dag í skugga deilna um framtíð Formúlu 1.

Forystumaður meistaramótsins, Bretinn Jenson Button var þriðji fljótastur á Brawn GP bíl og var 0.827 sekúndum á eftir. Hann hefur oft byrjað mótshelgar mun verr, en engu að síður er forskot Red Bull bílanna umtalsvert á helstu keppinautanna. Rubens Barrichello var fjórði fljótastur, brotabrotum á eftir Button, en Fernando Alonso á Renault fimmti. Lewis Hamilton á McLaren sem vann í fyrra varð með áttunda besta tíma, 1.2 sekúndum á eftir Vettel.

Sýnt verður frá æfingum keppnisliða á Silverstone brautinni á Stöð 2 Sport kl. 19:30 í kvöld.

Tímar fremstu manna

1. Vettel 1:19:400, 2. Webber 1:19:682, 3. Button 1:20:227, 4. Barrichello 1:20:242, 5. Alonso 1:20:458, 6. Massa 1:30:471, 7. Trulli 1:20:585, 8. Hamilton 1:20:652.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×