Lando Norris ökuþór McLaren vann sigur í hollenska kappakstrinum um síðustu helgi og náði þá að minnka forskot Max Verstappen á toppi keppni ökuþóra. Hann fær tækifæri til að minnka muninn enn frekar á morgun eftir sigur í tímatökum fyrir ítalska kappaksturinn á Monza-brautinni.
Norris mun því byrja fremstur en liðsfélagi hans hjá McLaren, Oscar Piastri, verður annar en hann er í fjórða sæti í keppni ökumanna.
Heimsmeistarinn Max Verstappen byrjar hins vegar í sjöunda sætinu og haldist sú staða eftir kappaksturinn á morgun nær Norris að kroppa 21 stig af forskoti Verstappen á toppnum.
George Russell hjá Mercedes hafnaði í þriðja sæti tímatökunnar á undan Ferrariökuþórunum Charles Leclerc og Carlos Sainz.
Það lítur út fyrir meiri spennu í Formúlunni á þessu tímabili en Max Verstappen hefur unnið heimsmeistaratitilinn síðustu þrjú ár og síðustu tvo með nokkrum yfirburðum.