Sigurður Ragnar: Erum lið sem erfitt er að vinna Elvar Geir Magnússon skrifar 16. júlí 2009 21:58 Sigurður Ragnar Eyjólfsson.
Íslenska kvennalandsliðið vann í kvöld glæsilegan sigur á því enska í æfingaleik sem fram fór í Colchester á Englandi. Ísland vann 2-0 með mörkum frá Hólmfríði Magnúsdóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur. „Við erum virkilega ánægð með þennan leik. Liðið var mjög vel skipulagt og varðist vel. England var meira með boltann, við gáfum þeim eftir ákveðið svæði og sóttum svo hratt á þær. Það er frábært að vinna 2-0 og ég held að Ísland hafi aldrei unnið England áður," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, eftir leik. „Fyrir utan þessi mörk þá sköpuðum við okkur alveg önnur færi svo leikskipulagið gekk algjörlega. Bæði mörkin voru eftir skyndisóknir frá okkur. Hólmfríður kom okkur yfir í fyrri hálfleik eftir að hafa sloppið í gegn. Síðan sendi Dóra María boltann á Margréti í seinni hálfleik og hún kláraði færið vel," sagði Sigurður en Margrét Lára var að skora sitt fyrsta landsliðsmark á árinu. „Margrét spilaði frábærlega í þessum leik fyrir okkur. Hún var ein frammi en vann virkilega vel og ég var ánægður með hana. Það er gaman að sjá að hún er aftur búin að finna sitt form og gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að hún spili vel áfram." Íslenska liðið leikur á sunnudag annan æfingaleik ytra en þá gegn Danmörku. „Danska liðið er hörkugott og mjög vel spilandi. Ég á eftir að fara betur yfir með liðinu hvernig sá leikur verður lagður upp. Við erum fyrst og fremst að reyna að æfa leikskipulag og þá fyrst og fremst varnarleikinn. Við erum með lið sem þarf að verjast vel og það er áhersluatriði í hverjum leik að halda hreinu. Mér finnst við vera orðið lið sem er virkilega erfitt að vinna," sagði Sigurður Ragnar.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira