Golf

Hlynur fjórði í Finnlandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur Geir kann vel við sig á erlendri grundu.
Hlynur Geir kann vel við sig á erlendri grundu. Mynd/Stefán

Selfyssingurinn Hlynur Geir Hjartarson stóð sig með miklum sóma á opna finnska meistaramótinu í golfi sem fram fór um helgina.

Hlynur Geir varð í fjórða sæti á mótinu á fjórum höggum undir pari. Hann lék hringina þrjá á 69, 72 og 68 höggum.

Alfreð Brynjar Kristinsson varð í tíunda sæti á mótinu en hann lék alla þrjá hringina á 71 höggi.

Hinn nýkrýndi Íslandsmeistari af Seltjarnarnesinu, Ólafur Björn Loftsson, fann sig ekki eins vel og hafnaði í átjánda sæti.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×