Formúla 1

Webber og Vettel í fyrsta og öðru sæti

Webber sótti á þá Barrichello og Button í stigakeppninni með sigri í Þýsklandi í dag.
Webber sótti á þá Barrichello og Button í stigakeppninni með sigri í Þýsklandi í dag.

Red Bull liðið vann glæsilegan tvöfaldan sigur á Nurburgring Formúlu 1 brautinni í dag: Mark Webber vann sinn fyrsta Formúlu 1 sigur á ferlinum og saman rúlluðu hann og Vetttel Brawn liðinu upp í þessu móti.

Svo mjög klúðraði Brawn liðið málum á óhentugri keppnisáætlun og mistökum í þjónustuhléi Rubens Barrichello að hann vildi ekki við nokkurn mann í liðinu tala eftir keppnina. Barrichello var lengi vel í forystuhlutverki, en biluð bensíndæla sem dælir bensíni á þjónustusvæðinu eyðilagði möguleika hans í kapphlaupinu við Webber.

Felipe Massa skaut Ferrari á verðlaunapallinn, en hann varð þriðji á eftir Red Bull mönnum.

Mark Webber vann fyrsta sigur Ástrala í Formúlu 1 síðan Alan Jones vann á áttunda áratugnum og sagðist kunna liðinu sínu bestu þakkir. Hann fótbrotnaði illa í reiðhjólaslysi i vetur og lagði hart að sér til að komast í toppform og það kostaði blóð svita og´tár. Hann var mjög hrærður í mótslok.

Úrslitin í dag þýða að Red Bull hefur saxað verulega á gott forskot Brawn ökumannanna í stigkeppni ökumanna og einnig í keppni bílasmiða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×