Formúla 1

Allir vilja líkjast goðinu Button

Allir vilja vera Button. Forystumaðurinn með gamansömum áhorfendum á Silverstone.
Allir vilja vera Button. Forystumaðurinn með gamansömum áhorfendum á Silverstone. Mynd: AFP

Jenson Button er sjötti á ráslínu fyrir breska Formúlu 1 kappaksturinn á morgun, en hann hefur ómetanlegan stuðning á brautinni í formi áhorfenda. Lewis Hamilton vann mótið í fyrra við mikinn fögnuð heimamanna, en núna er það Button sem er efstur í stigamóiti ökumanna.

"Það er alveg magnað að sjá hvaða stuðning ég fæ. Ég var hálf hræddur að labba í átt að undirskrifasvæði okkar með áhorfendum, það var svo mikill mannfjöldi. Það liggur við að þetta sé kómískt, en það er gífurlegur áhugi á Formúlu 1 í Bretlandi", sagði Button.

Hann keppir eins og aðrir í síðasta skipti á Silverstone, en breski kappaksturinn á að færast á Donington Park á næsta ári.

"Það elska allir Silverstone og þetta er góð braut til að fylgjast með Formúlu 1. Stemmningin er alltaf góð og því er engin ástæða til að færa mótið annað að mínu mati", sagði Button.

"Ég mun reyna gera mitt í kappakstrinum, en það verður erfitt að stefna á sigur þar sem ég er í sjötta sæti á ráslínu. Mér gekk illa að ná hita í dekkinn og því fór sem fór. Red Bull bílarnir eru erfiðir viðureignar og Rubens Barrichello eru í betri stöðu að slást við Vettel og Webber", sagði Button. Hann hefur unnið sex mót af sjö á árinu.

Bein útsending frá breska kappakstrinum er kl. 11:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.

sjá brautarlýsingu frá Silverstone






Fleiri fréttir

Sjá meira


×