Íslenski boltinn

Hélt fyrst að Geir hefði dottið á höfuðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Orrason var dómari í sautján ár í efstu deild.
Gylfi Þór Orrason var dómari í sautján ár í efstu deild. Mynd/GVA

Gylfi Þór Orrason var skipaður varaformaður KSÍ á fyrsta fundi nýrrar stjórnar KSÍ í gær en Gylfi kom nýr inn í stjórn á Ársþingi KSÍ fyrr í mánuðinum.

Gylfi verður tólfti varaformaður sambandsins frá upphafi en hann tekur við embættinu af Lúðvík Georgssyni. Lúðvík var skipaður varaformaður vegna veikinda Halldórs B. Jónssonar sem hafði verið varaformaður KSÍ frá 1996.

Gylfi einnig taka við formennsku í dómaranefnd KSÍ en því embætti gegndi einnig Halldór B. Jónsson á meðan hann var varaformaður sambandsins.

"Það kom mér verulega á óvart þegar formaðurinn kallaði mig á sinn fund í síðustu viku og fór að ræða þetta við mig. Ég verð að viðurkenna það að ég hélt að hann hefði dottið á höfuðið," sagði Gylfi í léttum tón.

"Við Geir höfum unnið áður saman og átt mjög gott samstarf. Hann lagði mikla áherslu á að ég tæki við þessu, ég þakkaði honum fyrir traustið og vona að ég nái að standa undir því," segir Gylfi.

"Ég ætlaði mér inn í stjórnina til þess að hjálpa til við að efla dómgæsluna því það veitir ekki af held ég. Svo bara þróuðust málin svona," sagði Gylfi en starfið snýst þó ekki aðeins um dómaramálin.

"Ég kem að ýmsum hlutum í sambandið við stefnumótun og annað hjá sambandinu. Það má ekki gleyma því að Geir er rosalega mikið erlendis þar sem hann er sinna þessum samskiptum við UEFA og er eftirlitsmaður í leikjum," segir Gylfi og bætir við.

"Það fer mikill tími hjá honum í að djöflast í UEFA-gaurunum til þess að tryggja það að við fáum áfram peninga til rekstursins. Það þarf að vera staðgengill heima á Íslandi og það verður hluti að starfinu líka," segir Gylfi.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×