Stjarnan lagði Val í framlengingu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 24. apríl 2009 21:15 Stjörnustúlkur eru komnar í úrslit.
Það verða Fram og Stjarnan sem mætast í úrslitum N1-deildar kvenna. Stjarnan tryggði sig inn í úrslitin í kvöld með dramatískum sigri á Val, 30-28, eftir framlengingu. Leikurinn var bráðfjörugur og æsispennandi allan tímann. Mikið gekk á undir lok venjulegs leiktíma en þá fékk Florentina Stanciu, hinn frábæri markvörður Stjörnunnar, meðal annars að líta rauða spjaldið. Mjög strangur dómur. Valsstúlkur fuku af velli með tveggja mínútna brottvísun í framlengingunni og það reyndist þeim dýrkeypt. Valur var yfir um tíma en Kristín Clausen skoraði tvö mikilvæg mörk og kom Stjörnunni yfir. Hin unga Þorgerður Anna Atladóttir tók síðan af skarið í lokasókninni og kláraði leikinn fyrir Stjörnuna. Fram og Stjarnan börðust hatrammlega um titilinn í fyrra og þá hafði Stjarnan betur. Fram fær nú tækifæri til að hefna. Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 9, Þorgerður Atladóttir 6, Kristín Clausen 4, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 4, Sólveig Lára Kjærnested 4, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 1. Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 10, Ágústa Edda Björnsdóttir 5, Eva Barna 3, Hildigunnur Einarsdóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir 1, Dagný Skúladóttir 1, Hafrún Kristjánsdóttir 1.
Olís-deild kvenna Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira