Er vefsíðan mín góð eða slæm? 24. júní 2009 04:00 Jón Trausti Snorrason framkvæmdastjóri Allra Átta ehf.
Ein af skemmtilegri vefsíðum netheima er www.webpagesthatsuck.com, þar sem farið er yfir vefsíður sem eru afar illa hannaðar og þær metnar. Þar segir meðal annars um fyrstu mánuði þessa árs, að „þetta virðist ætla að verða gott ár fyrir slæma vefsíðuhönnun". Af einhverjum ástæðum virðast margir vefhönnuðir vera fastir í því, að vilja koma frá sér „flottum" síðum, án þess að velta fyrir sér hvort þær virki eða ekki. Þar fyrir utan eru sumar slíkar síður alls ekki „flottar" og brjóta jafnan alvarlega í bága við hefðbundnar reglur um litanotkun á vefsíðum, svo ekki sé talað um viðurkenndar viðmiðanir um notendavænar síður. En hvers vegna borga fyrirtæki háar upphæðir fyrir slæma vefhönnun, sem þar fyrir utan virkar ekki nægjanlega vel af ýmsum ástæðum? Getur verið, að útlitið eitt sé haft í huga, en hvorki virkni né hvort hún sé notendavæn? Við bendum vefstjórum og öðru áhugafólki á, að taka prófin á ofangreindri síðu (checklist 1 og checklist 2 á webpagesthatsuck.com) og meta þannig ástand vefsíðu sinnar, eða fá innlenda sérfræðinga til að gera nauðsynlegar athuganir.
Markaðir Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira