NATO mun verja Eystrasaltsríkin Óli Tynes skrifar 3. september 2008 14:53
NATO ríkin styðja Bandaríkin í því að sýna framá að bandalagið sé reiðubúið að verja Eystrasaltsríkin þrjú gegn hverskonar árás Rússa. Óróa gætir í Eistlandi, Lettlandi og Litháen eftir innrás Rússa í Georgíu. Ríkin studdu öll Georgíu. Í viðtali við Financial Times í dag segir Kurt Volker, fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá NATO að bandalagið verði að senda þau skilaboð með heræfingum og viðbúnaðaráætlunum að það muni styðja Eystrasaltsríkin.Volker segir að Eistland, Lettland og Litháen væru fullgild bandalagsríki og fimmta grein NATO sáttmálans gildi fyrir þau. Fimmta greinin kveður á um að árás á eitt bandalagsríki sé árás á þau öll og að þau muni öll koma til hjálpar.NATO hefur lofað Georgíu aðild í framtíðinni en fimmta greinin nær ekki til landsins ennþá.Talsmaður NATO sagði að Bandalagið væri fullfært um að verja öll aðildarríkin ef til þess kæmi. Það yrði gert hratt og hiklaust. Talsmaðurinn sagði ennfremur að víðtækur stuðningur væri við ummæli Volkers.Hann bjóst við að málið yrði rætt á óformlegum fundi varnarmálaráðherra NATO í Lundúnum í september.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira