Ráðstefnan komin til að vera 21. október 2008 04:00 Anna Hildur segir að ráðstefnan You Are In Control sé komin til að vera. „
Ráðstefnan gekk alveg vonum framar. Við erum syngjandi glöð sem stóðum að henni," segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdastjóri Útóns, sem skipulagði alþjóðlegu ráðstefnuna You Are in Control sem var haldin á Hótel Sögu. Þar ræddu háttsettir aðilar úr tónlistarbransanum um ný viðskiptamódel á sviði afþreyingar og listmiðlunar. Einnig fylgdust þeir flestir með Iceland Airwaves-hátíðinni og skemmtu sér vel. Anna segir að ráðstefnan sé komin til að vera, enda hafi erlendu gestirnir gefið henni mjög góða einkunn. „Okkar metnaður liggur í því að skapa svona ráðstefnu til að gera okkur samkeppnishæf. Það er engin ástæða til annars þegar vefurinn er farinn að spila svona stóra rullu í þeim viðskiptamódelum sem við vinnum í. Við eigum að geta byggt upp miklu meira stórveldi í kringum okkar tónlistargeira. Ímynd á íslenskri tónlist er sterk og hefur verið í langan tíma og það eru virkileg tækifæri sem liggja í þessu," segir hún. „Það er mikilvægt að svona ráðstefna fari fram hér því við getum skapað miklu áhrifameiri tengsl. Hérna er ekkert sem dreifir athygli enda er fólk bara að koma hingað til að hlusta á íslenska tónlist." - fb
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira