Bíó og sjónvarp

Mynd um fatlaða uppistandara

Hjólastólasveitin er skipuð Ágústu Skúladóttur, Ásu Hildi Guðjónsdóttur, Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur, Guðríði Ólafsdóttur, Erni Sigurðssyni og Leifi Leifssyni.  fréttablaðið/arnþór
Hjólastólasveitin er skipuð Ágústu Skúladóttur, Ásu Hildi Guðjónsdóttur, Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur, Guðríði Ólafsdóttur, Erni Sigurðssyni og Leifi Leifssyni. fréttablaðið/arnþór
Leikstjórinn Ágústa Skúladóttir undirbýr nú heimildarmynd um uppistandshópinn Hjólastólasveitina, sem hefur vakið mikla athygli síðan hann var stofnaður fyrir einu ári.

Hópurinn, sem hefur skemmt í mörgum bæjarfélögum, hefur sett stefnuna á ferð um landið þar sem heimildarmyndin verður tekin upp í leiðinni. „Þegar við vorum á Akureyri lentum við í mörgum ævintýrum. Við vorum með okkar eigin „vasakameru" og þar kom á daginn að það væri ofboðslega mikið efni sem myndi fylgja okkur," segir Ágústa.

Ein uppákoman sem hópurinn lenti í var þegar hann ætlaði út að borða. „Þar voru fjórir veitingastaðir og einn þeirra var með stærsta klósettið fyrir fatlaða á landinu en hjólastólarnir komust ekki inn á veitingastaðinn. Á öðrum komumst við inn en þar var ekki góð klósettaðstaða. Síðan þar sem bæði atriðin voru í lagi var dýrasti veitingastaðurinn," segir hún. Hentaði það vitaskuld illa fyrir öryrkjana sem hafa jafnan lítið fé á milli handanna.

Ágústa segir að uppistandararnir fjalli um allt á milli himins og jarðar og séu síður en svo að barma sér. „Þetta er kolsvartur húmor og hárbeittur. Þau gera mikið grín að sér og sínu lífi enda þarf fólk að halda í húmorinn á öllum tímum til að þrauka, ekki síst nú til dags."

Næsta uppistand Hjólastólasveitarinnar verður í Iðnó á sunnudagskvöld klukkan 21. Húsið verður opnað klukkan átta og er miðaverð 1.000 krónur. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×