Íslenski boltinn

Óskar: Frábært sumar hjá KR

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
KR-ingar fagna í vatnsslagnum hefðbundna eftir bikarúrslitaleikinn.
KR-ingar fagna í vatnsslagnum hefðbundna eftir bikarúrslitaleikinn. Mynd/E. Stefán
Óskar Örn Hauksson var hetja KR í dag þar sem hann átti beinan þátt í sigurmarki KR á lokamínútum úrslitaleiks bikarkeppninnar gegn Fjölni í dag.

Óskar Örn kom inn á sem varamaður í leiknum og átti ríkan þátt í sigurmarki leiksins sem skrifast þó sem sjálfsmark Fjölnis.

„Ég átti svo sem ekkert sérstaklega sterka innkomu þar til markið kom en ég er ekkert að spá í því í dag," sagði hann og hló. „En þetta er auðvitað frábær tilfinning og í raun og veru veit ég ekkert hvernig ég á að haga mér núna."

Hann sagðist vera hæstánægður með sumarið hjá KR en liðið varð í fjórða sæti deildarinnar.

„Þetta er búið að vera frábært sumar og við erum í skýjunum í dag. Þetta á svo bara eftir að verða betra hjá okkur í framtíðinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×