FL Group seldi öll bréfin í AMR 13. febrúar 2008 18:25 Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group, á uppgjörsfundi félagsins í dag. Mynd/Anton
FL Group hefur selt öll hlutabréf sín í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni AMR, að sögn Jóns Sigurðssonar, forstjóra FL Group. Félagið flaggaði tæpum sex prósenta hlut í þessu móðurfélagi American Airlines, einu stærsta flugfélagi Bandaríkjanna, skömmu fyrir áramótin í hitteðfyrra og átti þegar mest lét rúman níu prósenta hlut. FL Group beitti stjórn AMR miklum þrýstingi til að auka gegnsæi eignasafns AMR í því augnamiði að auka virði þess og var talsvert ágengt. Gengi bréfa í AMR fór hæst í 40,66 dali á hlut í febrúar en tók að dala hratt og hafði lækkað um tæp sextíu prósent þegar árið var á enda runnið. Það stendur nú í 15,56 dölum á hlut. FL Group losaði sig við mestan hluta bréfa sinna í félaginu í enda nóvember í fyrra en hélt eftir 1,1 prósenti. Í síðasta mánuði losaði það um fleiri bréf. Á uppgjörsfundi FL Group fyrir stundu sagði Jón Sigurðsson, forstjóri félagsins, að félagið hefði selt öll bréf sín í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni og væri þar með horfið úr hluthafahópnum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira