Gullskip fundið undan strönd Namibíu Óli Tynes skrifar 30. apríl 2008 16:01 Portúgölsk karavel, eins og Bartolomeu Dias sigldi á.
Demantafyrirtæki Namibíu tilkynnti í dag að það hefði fundið flak af 500 ára gömlu skipi undan strönd landsins. Fyrirtækið var að leita að demöntum á hafsbotni. Um borð fundust meðal annars þúsundir portúgalskra gullpeninga, 50 fílatennur, nokkur tonn af kopar, fallbyssur úr kopar, ýmiskonar vopn og líkamsleifar. Konunglegir skartgripir sem fundust um borð benda til að þetta geti verið skip portúgalska landkönnðarins Bartolomeu Dias. Hann hvarf í hafi við Góðrarvonarhöfða árið 1500. Dias var aðalsmaður sem tilheyrði portúgölsku konungsfjölskyldunni. Hann var fyrsti vestræni sæfarinn sem sigldi fyrir Góðrarvonarhöfða. Það var árið 1488 og með því opnaði hann arðbæra siglingaleið til Austurlanda fjær. Frekari demantaleit var hætt þegar flakið fannst og portúgalska ríkisstjórnin hefur verið látin vita af fundinum. Búist er við að hún sendi sérfræðinga til að skoða flakið.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira