Bíó og sjónvarp

Depp í Dante-mynd

Leikarinn snjalli mun líklega fara með aðalhlutverkið í In the Hands of Dante.
Leikarinn snjalli mun líklega fara með aðalhlutverkið í In the Hands of Dante.

Framleiðslufyrirtæki Johnnys Depp, Infinitum Nihil, hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á skáldsögu Nicks Tosches, In the Hands of Dante. Depp mun líklega fara með aðalhlutverkið.

Bókin gerist á tveimur mismunandi tímum. Annars vegar á fimmtándu öld þegar Ítalinn Dante reynir að ljúka við meistaraverk sitt Hinn guðdómlega helgileik og hins vegar í nútímanum þegar höfundurinn Tosches er beðinn um að rannsaka handrit sem er hugsanlega upprunalegt handrit Dante. Depp, sem myndi leika Toches, er annars upptekinn þessa dagana við tökur á Lísu í Undralandi í leikstjórn Tims Burton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×