Íslenski boltinn

Heimir: Vorum óskynsamir í seinni hálfleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Heimir (til hægri) hefur verið aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar (í miðju) hjá FH undanfarin ár en er nú aðalþjálfari liðsins.
Heimir (til hægri) hefur verið aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar (í miðju) hjá FH undanfarin ár en er nú aðalþjálfari liðsins.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði eftir leikinn gegn Val í kvöld að sínir menn hefðu spilað leikinn upp í hendurnar á Valsmönnum í seinni hálfleik.

FH komst yfir í leiknum en Valur jafnaði metin í fyrri hálfleik og skoraði svo sigurmarkið í þeim síðari.

„Þetta var ágætis leikur og vorum við nokkuð sprækir í fyrri hálfleik. Við fengum nokkur góð færi en svo í síðari hálfleik vorum við óskynsamir, sérstaklega eftir að þeir skoruðu aftur," sagði Heimir.

„Við vorum of mikið í löngu sendingunum og spiluðum leikinn upp í hendurnar á þeim. Maður er auðvitað aldrei sáttur við að tapa en það er þó margt jákvætt við leik liðsins."

„Nú byrjar mótið og mætum við HK á útivelli í fyrstu umferð og er ljóst að það verður mjög erfiður leikur."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×