Íslenski boltinn

Samningar við Luka Kostic ekki endurnýjaðir

Elvar Geir Magnússon skrifar
Luka Kostic við stjórnvölinn hjá U21 landsliðinu ásamt Magnúsi Gylfasyni sem var aðstoðarmaður hans.
Luka Kostic við stjórnvölinn hjá U21 landsliðinu ásamt Magnúsi Gylfasyni sem var aðstoðarmaður hans.

Luka Kostic er hættur þjálfun U17 og U21 landsliða Íslands í fótbolta. Í tilkynningu frá KSÍ segir að samkomulag hafi náðst um að endurnýja ekki ráðningarsamninga við hann sem renna út á þessu ári.

Luka Kostic náði m.a. þeim árangri að koma U17 liðinu í 8 liða úrslitakeppni EM árið 2007. Hinsvegar var árangur U17 og U21 landsliðsins á þessu ári ekki nægilega góður.

Stjórn KSÍ þakkar Luka fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×