Svíar endurskoða landvarnir sínar vegna Georgíu Óli Tynes skrifar 9. september 2008 13:07 Sænsk Gripen orrustuþota.
Svíar ætla að endurskoða herstyrk sinn og viðbúnað vegna stríðsins í Georgíu. Sten Tolgfors varnarmálaráðherra Svíþjóðar segir í þarlendum fjölmiðlum í dag að ríkisstjórnin hafi ákveðið að fresta ákvarðanatöku um framtíðarskipan sænska heraflans. Ætlunin var að varnaráætlun fyrir árin 2010-2014 yrði tekin í haust. Allt ferlið verði hinsvegar endurskoðað með tilliti til stríðsins í Georgíu. Það sem Svíar eru ekki síst hugsi yfir er hversu hratt allt gekk fyrir sig. Tolgfors segir að ekki hafi verið um að ræða stóran herafla. Rússar hafi kannski teflt fram 20 þúsund manna liði. Þeim hafi hinsvegar tekist að brjóta her Georgíu á bak aftur á ótrúlega skömmum tíma. Svíar hafa frá árinu 2000 lagt litla áherslu á að styrkja her sinn, enda héldu menn þá að komin væri betri tíð með blóm í haga. Tolgfors segir hinsvegar að með tilliti til nýjustu atburða verði þeir að taka stefnu sína í varnar- og öryggismálum til gagngerrar endurskoðunar.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira