Gaman á Græna hattinum 27. nóvember 2008 06:00 Björgvin þenur strengi á Græna hattinum annað kvöld. Mynd Fréttablaðið/
Það verður gaman á Græna hattinum um helgina: á föstudagskvöld er það Margrét Guðrúnar og Bandið hans pabba en þá sveit skipa ekki ómerkari menn en: Ásgeir Óskarsson (Pelican, Stuðmenn, Þursaflokkurinn) trommur, Björgvin Gíslason (Náttúra, Pelican), gítar, Tómas Tómasson (Stuðmenn, Þursaflokkurinn) bassi og Margrét Guðrúnar píanó og söngur. Efnið sem þau flytja er að mestu leyti lög og textar Margrétar sem eru blús- og poppblendin auk þess sem blúsættuð lög úr ýmsum áttum fá að fljóta með. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og opnar húsið kl.21. Á laugardagskvöld er það svo stórsveitin Dúndurfréttir sem flytur „Dark side of the Moon" í heild sinni ásamt Andreu Gylfadóttur og Steinari Sigurðssyni saxófónleikara. Auk þess flytja þeir önnur stórvirki Pink Floyd eins og „Shine on you Crazy Diamond", „Comfortably Numb" o.fl. Tvennir tónleikar verða haldnir, þeir fyrri kl.20.00 en þeir seinni kl.23.00. Húsið opnar kl.19.00. Miðasala er á midi.is.- pbb
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira