Kakó ekki dýrara í 23 ár 25. desember 2008 17:00 Súkkulaði er ein af vinsælli sælkeravörunum og jafnframt framleitt úr kakóbaunum.
Heimsmarkaðsverð á kakóbaunum hefur ekki verið hærra í 23 ár og hefur verðið hækkað um 70% á árinu. Súkkulaðiframleiðendur segja að hækkunin muni velta beint út í verðlagið og því má búast við verð á einni af vinsælustu sælkeravörunni muni hækka á umtalsvert á nýju ári. Hækkunin er meðal annars rakin til þess að dregið hefur úr framleiðslu í mesta kakóbaunaframleiðsluríki heims, Fílabeinsströndinni í Vestur-Afríku. Verkföll verkamanna hafa haft talsverð áhrif. Allt að 40% kakóbauna eru framleiddar í landinu. Þá hefur einnig dregið úr framleiðslu og ræktun kakóbauna í nágrannaríkinu Ghana sem er næststærsta kakóbaunaframleiðsluríki heims. Samtök stærstu súkkulaðiframleiðends heimsins á borð við Nestlé, Marabou, Cloetta Fazer, Cadbury og Unilever fullyrða að hækkun heimsmarkaðsverðs á kakóbaunum muni velta beint út í verðlagið. Fyrirtækin hafi öll hagrætt og dregið úr kostnaði vegna yfirstandandi efnahagsþrenginga og því muni vörur fyrirtækjanna hækka í verði.
Mest lesið „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Sektuð fyrir að segjast vera best Neytendur Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Nefna fimm veitingastaði að baki „gervikjarasamningi“ Viðskipti innlent Eldamennskan og jólaljósin algengasti brunavaldur um hátíðirnar Samstarf Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Viðskipti erlent Kilroy hafi veitt ferðamönnum rangar upplýsingar Neytendur Að kúpla okkur frá vinnu um jólin Atvinnulíf Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindin sögð „bjargvættur“ jarðgassiðnaðarins Bölvað basl á Bond Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti Ræða samruna Honda og Nissan Bitcoin nær nýjum hæðum vegna Trumps Enn þynnri og samanbrjótanlegur iPhone Vesen á Messenger, Facebook og Instagram Verð á kaffi sögulega hátt Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Dómari fellir aftur úr gildi 56 milljarða dala launapakka Musk Danska ríkið kaupir Kastrup Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira