Fótbolti

Inter og Roma juku forskot sitt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic skoraði eitt mark í kvöld.
Zlatan Ibrahimovic skoraði eitt mark í kvöld. Nordic Photos / AFP

Inter og Roma unnu þægilega heimasigra í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld og eru á góðri leið með að stinga af á toppi deildarinnar.

Inter vann Lazio, 3-0, með mörkum Maicon, David Suazo og Zlatan Ibrahimovic. Roma vann Cagliari með tveimur mörkum frá Rodrigo Taddei í fyrri hálfleik.

Leikjunum var frestað í síðasta mánuði þegar lögreglumaður skaut stuðningsmann Lazio til bana og mikið ofbeldi braust út víða um landið í kjölfarið.

Inter er með 34 stig á toppi deildarinnar eftir fjórtán umferðir en Roma með 31 stig. Juventus er í þriðja sæti með 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×